Overview
About Straumur
Straumur er íslenskt fjártæknifyrirtæki og greiðsluliðkandi sem býður upp á heildstæða greiðslulausn fyrir íslenskan markað. Með samstarfi við Adyen, eitt fremsta fjártæknifyrirtæki heims, sameinum við staðbundna sérþekkingu og alþjóðlega tækni til að einfalda greiðslumiðlun á Íslandi.
Við bjóðum upp á posa, vefgreiðslur og þjónustuvef sem veitir rauntímayfirsýn og stjórn. Lausnir okkar eru sérsniðnar að íslenskum þörfum, með uppgjör í íslenskum krónum og öðrum myntum og tengingar við innlend afgreiðslu- og bókhaldskerfi. Markmið okkar er að gera greiðslur einfaldar og skilvirkar fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.
Við leggjum áherslu á hraða innleiðingu, stafræn ferli og lausnir sem styðja við vöxt viðskiptavina okkar.